Aðalsíða Prentun Þrívíddarteikning Skönnun Frágangur Hönnun Hafa samband

Gagnavarslan ehf.

Hefur tekið yfir rekstur prentþjónustufyrirtækisins Aðstoð 3D ehf.

Og flyst starfsemi þess að Grænásbraut 720, Ásbrú.

 

Aðstoð hefur frá stofnun lagt áherslu á teikningaprentun og ljósritunarþjónustu ásamt alhliða hönnun og frágangi prentaðs efnis. Þessu til viðbótar bætist nú við sérþekking starfsmanna Gagnavörslunnar á sviði skönnunar og skráningar.Yfirtakan er liður í að efla þjónustu Gagnavörslunnar enn frekar og er góð viðbót við núverandi starfsemi. Gagnavarslan er þekkingarfyrirtæki á sviði skjala- og upplýsingastýringar  og varðveislu gagna. Fyrirtækið veitir ráðgjöf í skjala- og upplýsingastjórnun, gæðamálum, verkefnastjórnun og stefnumótun.  Þá hefur fyrirtækið verið að þróa mjög öflugt skjala- og upplýsingastýringarkerfi.  Sérhæfðir starfsmenn bjóða upp á skönnun og skráningu fyrir viðskiptavini, auk pökkunar á gögnum og varðveislu á pappírsskjölum, munum, listaverkum og menningarminjum.
Með yfirtökunni leitast Gagnavarslan við að svara kröfum fyrirtækja og einstaklinga á Suðurnesjum um aukna þjónustu á þessum sviðum og byggja upp enn öflugri starfsemi á Ásbrú. Viðskiptavinir gera sífellt meiri kröfur um fjölbreytta þjónustu og fyrirtækið leggur metnað sinn í að koma til móts við þær.

Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að senda póst á adstod@adstod.is og/eða adstod@gagnavarslan.is eða í síma 553-1000.
 
Til baka
     

Aðstoð 3D ehf Grænásbraut 720 235 Reykjanesbær S: 553 1000 adstod@adstod.is/adstod@gagnavarslan.is